la belle-iloise
Sardínur með Tímút pipar
Sardínur með Tímút pipar
Í þessari uppskrift eru sardínurnar dósaðar með Tímút piparkornum. Tímút pipar er frá Nepal og er með mjög framandi bragð, sem er smá sítrus- og ávaxtakennt.
Sardínurnar eru dósaðar með ávaxtaríkri extra virgin ólífuolíu. Þær eru einungis veiddar þegar þær eru í bestu holdum. Þær eru síðan unnar ferskar, í höndunum, innan 24 klukkustunda frá veiðum. Sardínurnar eru sér valdar, snyrtar og vandlega raðað í dósina eftir eldun. Þær eru svo huldar með extra virgin ólífuolíu til að auðga og auka bragðið af fisknum.
Sardínur í ólífuolíu eru ríkar af omega-3, D-vítamíni, kalsíum og fosfór. Í dós varðveitast gæði þeirra í mörg ár þangað til dósin er opnuð. Sumir segja að gæði þeirra aukist með árunum, líkt og vandað vín.
Þyngd 115 gr.
Innihald: Sardínur, extra virgin ólífuolía, vatn, sítrónusafi, sítrónutímían, Timút pipar, krydd, salt, guarmjöl.
Geymist á köldum stað (í dósaskápnum).
Síðan 1932 hefur la belle-iloise boðið upp á dósaðan fisk með einstöku bragði, beint frá Quiberon í Frakklandi. Varan er framleidd samkvæmt ströngustu stöðlum og sameinar hágæða hráefni og fisk sem er unnin með handverkskunnáttu sem hefur varðveist frá kynslóð til kynslóðar.
