la belle-iloise

Sardínur með batak berjum og túrmerik

Sardínur með batak berjum og túrmerik

Eðlilegt verð 1.450 ISK
Eðlilegt verð Útsöluverð 1.450 ISK
Útsala Uppselt
Með VSK.
Með þessari einstöku uppskrift frá la belle-iloise getur þú farið í bragðferðalag undir gylltri sól. Ilmríkur hiti frá túrmeriki, sem er andoxunarríkt ofurkrydd, blandast við sítrónu- og blómatóna frá Batak-berjum, en það er sjaldgæfur pipar sem er tíndur villtur á eyjunni Súmötru. Þetta er að auki svo falleg dós!

Sardínurnar eru einungis veiddar þegar þær eru í bestu holdum. Þær eru síðan unnar ferskar, í höndunum, innan 24 klukkustunda frá veiðum. Sardínurnar eru sér valdar, snyrtar og vandlega raðað í dósina eftir eldun. Þær eru svo huldar með extra virgin ólífuolíu til að auðga og auka bragðið af fisknum.

Sardínur í ólífuolíu eru ríkar af omega-3, D-vítamíni, kalsíum og fosfór. Í dós varðveitast gæði þeirra í mörg ár þangað til dósin er opnuð. Sumir segja að gæði þeirra aukist með árunum, líkt og vandað vín.

Þyngd 115 gr.

Innihald: Sardínur, repjuolía (19%), sítrónusafi, vatn, krydd, þar á meðal túrmerik (0,1%) og Batak ber (0,1%), sterkja, salt.

Geymist á köldum stað (í dósaskápnum).

Síðan 1932 hefur la belle-iloise boðið upp á dósaðan fisk með einstöku bragði, beint frá Quiberon í Frakklandi. Varan er framleidd samkvæmt ströngustu stöðlum og sameinar hágæða hráefni og fisk sem er unnin með handverkskunnáttu sem hefur varðveist frá kynslóð til kynslóðar.

Skoða allar upplýsingar.