la belle-iloise

Makrílflök í hvítvíni og kryddjurtum

Makrílflök í hvítvíni og kryddjurtum

Eðlilegt verð 1.650 ISK
Eðlilegt verð Útsöluverð 1.650 ISK
Útsala Uppselt
Með VSK.
Klassískir makrílbitar í hvítvíni, unnir samkvæmt hefðbundnum aðferðum. Þessi uppskrift samanstendur af bragðgóðum makrílflökum sem eru maríneruð í hvítvíni ásamt kryddjurtum.
Makríllinn er veiddur yfir vetrartímann þegar fiskurinn er hvað feitastur og eldaður í kryddsoði (court-bouillon). Flökin eru snyrt og dósuð í höndunum ásamt fimm bragðbætandi hráefnum: sítrónu, gulrót, lauk, kapers og súrum gúrkum. Maríneringin er gerð úr Muscadet, sem er gæðavottað (AOC) þurrt hvítvín, sem gefur ferskleika og dálitla sýru.
Makríll er ríkur af ómega-3, vítamínum og steinefnum úr hafinu, sem gerir hann að góðri viðbót við holla og jafna máltíð á hverjum degi.

Þyngd 176 gr.

Innihaldslýsing: Makrílflök (69%), vínedik, vatn, krydd og grænmeti (5,4%) (sítróna, laukur, gulrót, súr gúrka, kapers), hvítvín (súlfít) (4,7%), hvítvínsedik (súlfít), krydd.

Geymist á köldum stað (í dósaskápnum).

Síðan 1932 hefur la belle-iloise boðið upp á dósaðan fisk með einstöku bragði, beint frá Quiberon í Frakklandi. Varan er framleidd samkvæmt ströngustu stöðlum og sameinar hágæða hráefni og fisk sem er unnin með handverkskunnáttu sem hefur varðveist frá kynslóð til kynslóðar.

Skoða allar upplýsingar.