CALMA & CHICHA

Kræklingur CALMA & CHICHA

Kræklingur CALMA & CHICHA

Eðlilegt verð 1.500 ISK
Eðlilegt verð Útsöluverð 1.500 ISK
Útsala Uppselt
Með VSK.

Við vorum að fá nýjan krækling frá Conservas El Capricho, sem er fjölskyldufyrirtæki í bænum Santona í Kantabríu á Spáni. Dósirnar eru markaðssettar undir vörumerkinu CALMA & CHICHA sem undirstrikar ákveðinn léttleika og viðhorf okkar ráðuneytisstarfsmanna gagnvart lífinu.

Þessi kræklingur er í escabeche sósu að spænskum sið og inniheldur eingöngu sólblómaolíu, vínedik og hrein krydd. Það eru á bilinu 12 til 16 stk í dósinni.

Þær koma í mjög fallega hönnuðum umbúðum og það er ákveðin nostalgía að opna sér dós og fá sér krækling á ristað brauð með góðu frönsku smjöri. Við mælum einnig með í forréttarsalat eða afbrigði af rækjukokteil. 

Þyngd 110 gr.

Innihald: Kræklingur, sólblómaolía, hvítvínsedik, hvítlaukur, lárviðarlauf og krydd.

Geymist á köldum stað (í dósaskápnum).

Skoða allar upplýsingar.