1
/
af
2
CALMA & CHICHA
Hörpuskel CALMA & CHICHA
Hörpuskel CALMA & CHICHA
Eðlilegt verð
1.650 ISK
Eðlilegt verð
Útsöluverð
1.650 ISK
Einingaverð
/
per
Með VSK.
Við vorum að fá nýja hörpuskel frá Conservas El Capricho, sem er fjölskyldufyrirtæki í bænum Santona í Kantabríu á Spáni. Dósirnar eru markaðssettar undir vörumerkinu CALMA & CHICHA sem undirstrikar ákveðinn léttleika og viðhorf okkar ráðuneytisstarfsmanna gagnvart lífinu.
Þessi höruskel er í léttri salsa sósu að spænskum sið. Það eru á bilinu 14 til 18 stk í dósinni.
Skelin kemur í mjög fallega hönnuðum umbúðum og það er ákveðin nostalgía að opna sér dós og fá sér hörpuskel á ristað brauð með góðu frönsku smjöri. Við mælum einnig með í forréttarsalat eða afbrigði af rækjukokteil.
Þyngd 110 gr.
Innihald: Hörpuskel, tómatar, sólblómaolía, laukur og krydd.
Geymist á köldum stað (í dósaskápnum).
